ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
07 október 2016
/
Forsætisráðuneytið
Forsætisráðherra fundaði með fyrsta ráðherra Skotlands
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra fundaði í dag með Nicola Sturgeon fyrsta ráðherra Skotlands. Á fundinum voru meðal annars rædd málefni norðurslóða og ákvörðun Bretlands um að segja sig úr Evrópusambandinu.
Fyrsti ráðherra Skotlands er stödd hér á landi í tengslum við ráðstefnuna „Arctic Circle“ sem haldin er í Hörpu nú um helgina.