Ísland tekur sæti í ráðgjafaráði Ted Stevens norðurslóðamiðstöðvarinnar
Varnarmálafulltrúi Íslands í Bandaríkjunum hefur undirritað samkomulag við Ted Stevens Center for Arctic Security Studies (TSC) í Alaska um þátttöku Íslands í starfsemi miðstöðvarinnar.
Með samkomulaginu tekur Sturla Sigurjónsson sendiherra við hlutverki norðurslóðaráðgjafa (e. Arctic Chair) fyrir hönd Íslands hjá miðstöðinni og fær sæti í ráðgjafaráði hennar, ásamt fulltrúum annarra norðurskautsríkja utan Rússlands, og tekur virkan þátt í stefnumótun og samstarfi um öryggis- og varnarmál á norðurslóðum.
TSC er þekkingar- og fræðasetur á vegum bandaríska varnarmálaráðuneytisins og sinnir rannsóknum, fræðslu og samstarfi um öryggis- og varnarmál á norðurslóðum. Þá er miðstöðin mikilvægur vettvangur fyrir samstarf sérfræðinga frá Bandaríkjunum, aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins og öðrum samstarfsríkjum.
Samstarfið styrkir tengsl Íslands við Bandaríkin og undirstrikar mikilvægi landsins í öryggis- og varnarmálum á norðurslóðum og í Norður-Atlantshafi.