1. Lífeyrissjóðum veitt aukið frelsi til fjárfestinga

 Aðgerðinni er lokið

 

Staða aðgerðarinnar

Nóvember 2026: Frumvarp um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða) var samþykkt sem lög 19. júní með minniháttar breytingum, sbr. nefndarálit. Lögin tóku gildi 1. júlí.

Aðgerðin

Markmið aðgerðarinnar er að endurskoða lagaumgjörð lífeyrissjóða með hliðsjón af breyttum aðstæðum og styðja þannig við verðmætasköpun og framleiðnivöxt í hagkerfinu.

Gerðar verða breytingar sem miða að því að draga úr magntakmörkunum á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða þannig að þeir geti ráðstafað fjármagni með sveigjanlegri og skilvirkari hætti til fjárfestinga. Samhliða verður áfram lögð áhersla á trausta áhættustýringu, dreifingu eigna og langtímahagsmuni sjóðfélaga.

Tímarammi: Vor 2026.

Ábyrgðarráðuneyti: Fjármála- og efnahagsráðuneytið.

Framkvæmdaaðili: Fjármála- og efnahagsráðuneytið.

Samstarfsaðilar: Landssamtök lífeyrissjóða og Seðlabanki Íslands.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Eflum vísindi og nýsköpun; Einföldum regluverk.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Lagasetning. Yfir lengri tíma verða áhrif mæld í auknum fjárfestingum lífeyrissjóða í nýsköpun.

Var efnið hjálplegt?