1. STEM-áherslur í leik-, grunn- og framhaldsskólum
| Aðgerðin er í vinnslu |
Staða aðgerðarinnar
Nóvember 2026: Unnið er að undirbúningi alþjóðlegs útboðs um menntaumbætur í stærðfræði og náttúrugreinum í 1.–10. bekk, með áherslu á samfellu við framhaldsskóla. Samstarfið mun tengja faglegan stuðning við endurskoðun viðkomandi hluta aðalnámskrár og viðmiðunarstundaskrár við þróun námsgagna, starfsþróun kennara og innleiðingu. Jafnframt verður umgjörð kennaramenntunar og starfsþróunar mótuð með háskólum og sveitarfélögum og núverandi framboð símenntunar og starfsþróunar greint. Á framhaldsskólastigi er unnið að lokadrögum að STEM-viðmiðunarbraut í víðtæku samráði við hagaðila og hefst gerð áfangalýsinga að drögunum loknum.
Aðgerðin
Markmið aðgerðarinnar er að efla áherslur á STEM-greinar í aðalnámskrám, viðmiðunarstundaskrám og námsbrautum í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
Námskrár fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla verða endurskoðaðar með það að markmiði að leggja meiri áherslu á færni nemenda í STEM-tengdum námsgreinum. Jafnframt verða gerðar breytingar á viðmiðunarstundaskrá grunnskóla til að auka vægi STEM-greina til að skapa aukið svigrúm fyrir kennslu þeirra.
Að auki verða viðmið um einingafjölda í kjarnafögum og STEM-greinum í námi á framhaldsskólastigi endurskoðuð og gefnar út viðmiðunarnámsbrautir með sérhæfingu í STEM-greinum og heilbrigðistengdu námi. Gætt verður að samfellu á milli viðmiða á framhaldsskólastigi og háskólanáms í STEM-greinum.
Mótuð verður betri og markvissari umgjörð um menntun og starfsþróun kennara í samstarfi við háskólasamfélagið og sveitarfélög. Sérstök áhersla verður lögð á að efla fagþekkingu kennara í STEM-greinum, meðal annars til að styrkja kennslu í náttúrufræði og stærðfræði á öllum skólastigum.
Núverandi framboð símenntunar og starfsþróunar verður greint og metið með það að markmiði að þróa árangursíkar aðferðir til að styðja við faglega þróun kennara.
Tímarammi: Endurskoðun verði lokið fyrir árslok 2026. Innleiðing breyttrar viðmiðunarstundaskrár og námsbrauta hefjist í áföngum í byrjun skólaárs 2027 –2028 og hafi verið að fullu lokið í byrjun skólaárs 2030–2031.
Ábyrgðarráðuneyti: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Framkvæmdaaðili: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Samstarfsaðilar: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennarasamband Íslands, skólasamfélagið og atvinnulífið.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Tryggjum færni til framtíðar; Eflum vísindi og nýsköpun.
Áætlaður kostnaður: Kostnaður vegna endurmenntunar kennara 300 m.kr. á ári.
Afurð: Endurskoðaðar aðalnámskrár leik-, grunn- og framhaldsskóla með meiri áherslu á STEM-tengdar námsgreinar. Fleiri kennarar með fagþekkingu í STEM-greinum.