3. Námsefni, kennsluleiðbeiningar og aðstaða til náms og kennslu í STEM-greinum
| Aðgerðin er í vinnslu |
Staða aðgerðarinnar
Nóvember 2026: Unnið er að undirbúningi alþjóðlegs útboðs um námsgögn, kennsluleiðbeiningar, starfsþróun kennara og stuðning við innleiðingu í stærðfræði og náttúrugreinum í grunnskólum, samhliða samráði um námsefni og aðstöðu í leik- og grunnskólum. Áformað er að aukið fjármagn 2027 nýtist fyrst í stærðfræði, íslensku og íslensku sem öðru tungumáli; náttúrugreinar fylgja síðar. Vinna er í gangi um gervigreind í menntun og STEM-vistkerfi. Óleyst er gjaldfrjálst STEM-námsefni og samræmdar kennsluleiðbeiningar í framhaldsskólum en vinna við STEM viðmiðunarbraut er langt komin en ljúka þarf þeirri vinnu áður en unnið er að kennsluleiðbeiningum. Ákvarða þarf forgang, ábyrgð, fjármögnun og framkvæmd.
Aðgerðin
Markmið aðgerðarinnar er að auka framboð á vönduðu námsefni og námsgögnum og bæta aðstöðu til náms og kennslu í STEM-greinum. Sérstök áhersla verður lögð á að námsefni í STEM-greinum á framhaldsskólastigi verði nemendum að kostnaðarlausu.
Aðgerðinni er ætlað að styðja við kennslu í STEM-greinum með afburða námsefni, kennsluleiðbeiningum og verkefnum sem tengjast íslenskum aðstæðum og framtíðarfærni. Námsefni og leiðbeiningar verða samræmd áherslum í aðalnámskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Í samstarfi við sveitarfélög verður unnið að uppbyggingaráætlun sem á að tryggja að nemendur á öllum skólastigum njóti góðrar aðstöðu til náms í STEM-greinum. Áhersla verður lögð á þróun kennsluaðferða í STEM-greinum og markvissa uppbyggingu STEM-vistkerfis, að fyrirmynd sambærilegra verkefna erlendis og í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki á sviði STEM.
Markmiðið er að gera STEM-nám aðgengilegt og framkvæmanlegt í skólum með því að styðja við kennara með tilbúnu efni, faglegum leiðbeiningum og fjölbreyttum verkefnum. Þá verður lögð áhersla á að efla framtíðarfærni nemenda, svo sem lausnamiðaða gagnrýna hugsun, upplýsingalæsi, tæknilæsi og ábyrga notkun tækni og gervigreindar.
Tímarammi: 2027.
Ábyrgðarráðuneyti: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, mennta- og barnamálaráðuneytið og sveitarfélögin.
Samstarfsaðilar: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennarasamband Íslands, skólasamfélagið og atvinnulífið.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Tryggjum færni til framtíðar; Eflum vísindi og nýsköpun.
Áætlaður kostnaður: 300 m.kr. á ári á gildistíma aðgerðaáætlunarinnar.
Afurð: Aukið framboð á námsefni og námsgögnum sem bæta aðstöðu til náms og kennslu í STEM-greinum.