9. Stefna um kolefnisstjórnun

 Aðgerðin er í vinnslu

 

Staða aðgerðarinnar

Nóvember 2026: Vinna við fyrstu loftslagsstefnu Íslands stendur yfir. Ráðuneytið er í nokkuð víðtæku samráði um þessar mundir, m.a. í tengslum við bæði náttúrumiðaðar lausnir og tæknilausnir sem snúa að kolefnisstjórnun. Gert er ráð fyrir að loftslagsstefnan liggi fyrir um áramótin og mun hún vera til grundvallar vinnu við stefnu um kolefnisstjórnun. Stefna um kokefnisstjórnun verður unnin í kjölfarið og áformað að hún liggi fyrir í lok fyrsta fjórðungs 2027.

Aðgerðin

Markmið aðgerðarinnar er að móta heildstæða og skýra stefnu um kolefnisstjórnun sem skapar fyrirsjáanlega laga- og rekstrarlega umgjörð og styður við uppbyggingu verðmætaskapandi starfsemi á sviði kolefnisföngunar, -bindingar, -nýtingar og -geymslu.

Unnið verður að mótun stefnu stjórnvalda um kolefnisstjórnun þar sem skilgreind verða markmið, ábyrgð og forgangsröðun verkefna á sviði kolefnisföngunar, -bindingar, -nýtingar og -geymslu, sem og förgunar kolefnis. Samhliða verður unnin heildstæð greining á laga- og reglugerðarumhverfi með það að markmiði að tryggja skýran lagaheimildaramma, skilvirka leyfisveitingaferla og öfluga umhverfisvernd.

Tímarammi: 2026–2027.

Ábyrgðarráðuneyti: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.

Samstarfsaðilar: Umhverfis- og orkustofnun og hagaðilar.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Einföldum regluverk; Eflum vísindi og nýsköpun; Loftslag.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Stefna.

Var efnið hjálplegt?