Græn skref

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið tekur virkan þátt í verkefninu Grænum skrefum og hefur nú lokið innleiðingu á öllum fimm skrefunum.

Ráðuneytið vinnur eftir umhverfisstefnu Stjórnarráðsins og loftslagsstefnu Stjórnarráðsins.

Kolefnishlutlaust ráðuneyti

Markmið ráðuneytisins er að vera kolefnishlutlaust og ráðuneytið styrkir verkefni á Sólheimum vegna losunar sinnar. Kolefnisbindingin fer fram með þeim hætti að gróðursett verða tré í Sólheimaskógi á Sólheimum eða í samstarfi við Land og skóg.

Græn skref

Um Græn skref

Verkefnið Græn skref er fyrir ríkisstofnanir sem vilja draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni og efla umhverfisvitund starfsmanna. Með þátttöku í Grænum skrefum gefst stofnunum tækifæri á að innleiða öflugt umhverfisstarf með kerfisbundnum hætti undir handleiðslu sérfræðinga Umhverfisstofnunar.