23 febrúar 2026
Virðing fyrir alþjóðalögum og mannréttindum er tilvistarspursmál fyrir Ísland
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ávarpaði mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í dag, en nú stendur yfir árleg ráðherravika ráðsins í Genf. Þar kom hún á framfæri áhyggjum sínum af stöðu mannréttindamála á heimsvísu. Ráðherra sagði síðasta ár hafa verið afar krefjandi fyrir alþjóðakerfið í skugga átaka víða um heim og þverrandi virðingu fyrir alþjóðalögum.