Fjármálastöðugleikaráð
Fjármálastöðugleikaráð er formlegur samstarfsvettvangur stjórnvalda um fjármálastöðugleika. Ráðið er vettvangur samráðs, upplýsingaskipta og stefnumótunar í því skyni að efla og varðveita fjármálastöðugleika í almannaþágu, sporna við uppsöfnun kerfisáhættu og samhæfa viðbúnað opinberra aðila við fjármálakreppu. Í ráðinu sitja ráðherra, sem er formaður ráðsins, og seðlabankastjóri. Fjármálastöðugleikaráð kemur saman að minnsta kosti þrisvar á ári en fundar jafnframt sérstaklega þegar fjármálastöðugleika er ógnað eða hætta er á atburðum sem geta valdið umtalsverðum smitáhrifum eða tjóni á fjármálamarkaði. Meðlimir ráðsins eru fjármála- og efnahagsráðherra og seðlabankastjóri. Ráðherra er formaður fjármálastöðugleikaráðs.
Helstu verkefni fjármálastöðugleikaráðs eru:
- að móta opinbera stefnu um fjármálastöðugleika,
- að vakta efnahagslegt ójafnvægi, áhættu í fjármálakerfinu, óæskilega hvata og aðrar aðstæður sem eru líklegar til að ógna fjármálastöðugleika,
- að meta árangur af þjóðhagsvarúðartækjum
Fjármálastöðugleikaráð fundar sérstaklega þegar fjármálastöðugleika er ógnað eða hætta er á atburðum sem geta valdið umtalsverðum smitáhrifum eða tjóni á fjármálamarkaði. Ráðið leggur mat á til hvaða nauðsynlegu aðgerða eða ráðstafana þurfi að grípa og samræmir aðkomu stjórnvalda við slíkar aðstæður.
Fréttatilkynningar og fundargerðir
Annar fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2026
Fyrsti fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2026
Fjórði fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2025
Þriðji fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2025
Annar fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2025
Fyrsti fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2025
Þriðji fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2024
Annar fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2024
Fyrsti fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2024
Fundargerð fjármálastöðugleikaráðs 18. júní 2026
Fundargerð fjármálastöðugleikaráðs 8. apríl 2026
Fundargerð fjármálastöðugleikaráðs 8. desember 2025
Fundargerð fjármálastöðugleikaráðs 8. október 2025
Fundargerð fjármálastöðugleikaráðs 19. júní 2025
Fundargerð fjármálastöðugleikaráðs 31. mars 2025
Fundargerð fjármálastöðugleikaráðs 9. desember 2024
Fundargerð fjármálastöðugleikaráðs 7. október 2024
Fundargerð fjármálastöðugleikaráðs 10. júní 2024
Fundargerð fjármálastöðugleikaráðs 11. desember 2023
Fjármálastöðugleikaráð
Var efnið hjálplegt?