Ráðgjöf um fjármál heimilanna
Embætti umboðsmanns skuldara býður upp á endurgjaldslausa þjónustu við einstaklinga sem eiga í fjárhagserfiðleikum. Meginmarkmið embættisins er að bæta stöðu þeirra sem eiga í skulda- og greiðsluerfiðleikum og auðvelda þeim að koma greiðslubyrði og skuldastöðu í ásættanlegt horf.
Embætti umboðsmanns skuldara gætir hagsmuna skuldara og veitir þeim aðstoð þegar við á, líkt og nánar er kveðið á um í lögum um embættið.
Upplýsingar um einstök úrræði má nálgast á vef umboðsmanns skuldara.
Sjá einnig:
Lög
Lög um umboðsmann skuldara nr. 100/2010Lög um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara,nr. 166 23. desember 2011Lög nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklingaLög nr. 9/2014 um fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskiptaLög nr. 50/2009 um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæðiLög nr. 63/1985 um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklingaLög nr. 44/1998 um húsnæðismálVar efnið hjálplegt?