Þróunarsamvinna Íslands og Síerra Leóne
endiráð Íslands í Freetown var formlega opnað í maí 2024 og er meginverkefni þess að sinna þróunarsamvinnuverkefnum. Samstarf Íslands og Síerra Leóne á sviði þróunarsamvinnu hófst hins vegar árið 2018 undir hatti svæðaverkefnis í fiskimálum í Vestur-Afríku í samstarfi við Alþjóðabankann og stjórnvöld í landinu, með það að markmiði að styðja við sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda og aukin lífsgæði í fiskveiðisamfélögum. Einnig hefur verið lögð áhersla á að styðja við vatns- og hreinlætisverkefni sem snúa bæði að bættum lífskjörum íbúa sem og bættri meðferð afla í strand- og sjávarbyggðum í samstarfi við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og sjávarútvegsráðuneytið í landinu.
Þá hefur Ísland stutt við verkefni sem miðar að því að bæta lífskjör kvenna og stúlkna sem þjást af fæðingarfistli (e. obstetric fistula) í samstarfi við Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) frá 2020. Á grunni þess samstarfs fór af stað í byrjun árs 2022 stórt verkefni sem hefur það að markmiði að styðja viðleitni stjórnvalda við að útrýma fæðingarfistli í Síerra Leóne á næstu árum.
Ísland hefur lagt áherslu á að beita héraðsnálgun í tvíhliða þróunarsamvinnu í Malaví og Úganda. Stefnan er sett á að vinna einnig samkvæmt þeirri nálgun með Síerra Leóne þegar fram líða stundir en byrjað er á að vinna í gegnum og með stofnunum Sameinuðu þjóðanna og félagasamtökum í landinu í samvinnu við yfirvöld. Einnig starfa íslensku félagasamtökin, Aurora velgerðasjóður, Barnaheill – Save the Children á Íslandi og Rauði krossinn, með stuðningi frá utanríkisráðuneytinu að verkefnum í Síerra Leóne.
Megináhersla í tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands er að stuðla að bættum lífskjörum í samstarfslöndunum með því að styðja við áætlanir og viðleitni stjórnvalda í viðkomandi löndum til að draga úr fátækt og bæta félagsleg og efnahagsleg lífsskilyrði á þeim svæðum sem Ísland styður. Þróunarsamvinna Íslands í Síerra Leóne er í samræmi við áherslur Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu sem byggja á stefnu Íslands um alþjóðlega þróunarsamvinnu en þar er meðal annars lögð áhersla á uppbyggingu félagslegra innviða, jafnréttismál og mannréttindi.
Samstarf við Alþjóðastofnanir
Lögð er áhersla á að nýta sérþekkingu og reynslu lykilsamstarfsstofnana Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu í Síerra Leóne til að styðja við framþróun í landinu í takti við áherslur beggja landa og viðkomandi stofnana.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (The United Nations Children‘s Fund – UNICEF)
Samstarfið við UNICEF hófst 2018 með stuðningi við vatns -og hreinlætisverkefni í þremur sjávarþorpum í Síerra Leóne. Síðan þá hefur verkefnið stækkað og nær nú til 16 afskekktra samfélaga í sex héruðum. Áhersla er lögð á uppbyggingu vatns- og hreinlætisaðstöðu en bætt aðgengi að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu minnka meðal annars útbreiðslu landlægra smitsjúkdóma. Gert er ráð fyrir að um 53.0000 manns muni njóta góðs af verkefninu. Heildrænni aðferðafræði er beitt í verkefninu líkt og annarri vinnu Íslands og er sérstök áhersla á að bæta aðstæður barna og kvenna í samfélögunum. Skólar og heilsugæslustöðvar fá aðgengi að bættri vatns- og hreinlætisaðstöðu, tíðarheilbrigði stúlkna í skólum er stutt með aukinni fræðslu og aðgengi að tíðarvörum og unnið verður að því að bæta sérstaklega umönnun og menntun ungra barna í þorpunum, meðal annars með því að setja á fót og styðja við starfsemi leikskóla. Þá verður leitast við að auka öryggi íbúa með til að mynda uppsetningu á sólarknúnum útiljósum í þorpunum, fisklöndunarpallar með aðgengi að vatni eru einnig reistir sem skilar sér í bættri meðferð afla. Þá hefur endurvinnslustöðvum verið komið á fót þar sem ungmenni eru þjálfuð í hvernig nýta má plastúrgang og annað sorp til framleiðslu á nytsamlegum vörum, sem hluti af viðleitni til að draga úr plastmengun við löndunarstaði og styðja við atvinnusköpun fyrir ungt fólk. UNICEF vinnur í samstarfi við stjórnvöld og frjáls félagasamtök sem starfandi eru í Síerra Leóne við framkvæmd verkefnisins.
Ljósmynd/UNICEF Sierra Leone/2022/Mutseyekwa
Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna(United Nations Population Fund– UNFPA)
Í maí árið 2022 hófst formlega samstarfsverkefni Íslands og UNFPA í Síerra Leóne sem snýst um að styðja viðleitni stjórnvalda til að útrýma fæðingarfistli í landinu. Verkefnið byggir á fyrra samstarfi sem fólst í að fyrirbyggja og lækna fæðingarfistil og skilaði góðum árangri. Til að vinna að markmiðinu er tekið á heildstæðan hátt á orsökum og afleiðingum fæðingarfistils fyrir konur og stúlkur. Það er meðal annars gert með fyrirbyggjandi aðgerðum sem stuðla að vitundarvakningu og fræðslu, auk betra aðgengis að bættri mæðravernd. Einnig er áformað að auka framboð á skurðaðgerðum og bæta eftirfylgni með þeim konum og stúlkum sem gangast undir skurðaðgerðir með valdeflandi verkefnum sem renna stoðum undir lífsafkomu þeirra. Náið er unnið með heilbrigðisyfirvöldum í Síerra Leóne við framkvæmd verkefnisins og lögð áhersla á að efla getu heilbrigðisstofnana til að veita viðunandi fæðingar-, kyn- og frjósemisþjónustu. UNFPA vinnur jafnframt að verkefninu í samstarfi við frjáls félagasamtök sem eru starfandi í landinu. Verkefnið, sem er eitt það stærsta á þessu sviði fyrir UNFPA í Vestur-Afríku, hefur sterka jafnréttis- og mannréttindavídd en það beinist sérstaklega að fátækum stúlkum og konum sem hafa verið jaðarsettar í samfélaginu vegna fæðingarfistils.
Fæðingarfistill er alvarlegt og viðvarandi vandamál í fátækustu ríkjum heims þar sem heilbrigðisþjónusta er bágborin og algengt er að barnungar stúlkur eignist börn, en kvillinn þekkist varla á Vesturlöndum. Orsök fæðingarfistils er rifa í fæðingavegi, t.d. milli ristils og legganga sem ekki er meðhöndluð. Konur sem þjást af fæðingarfistli eiga því oft erfitt með að hafa stjórn á þvaglátum eða hægðum.
Ísland fjármagnar svipuð verkefni með UNFPA í Malaví og Úganda. Með stuðningi við verkefnið í Síerra Leóne leggur Ísland því sitt af mörkum í að berjast gegn fæðingarfistli í öllum tvíhliða samstarfsríkjum sínum á sviði þróunarsamvinnu.
Ljósmynd/UNFPA/Sierra Leone
Verkefni um upprætingu kynfæralimlestinga kvenna í Síerra Leóne
Samstarfsvekefni Íslands, stjórnvalda í Síerra Leóne og UNFPA um upprætingu á kynfæralimlestingum stúlkna og kvenna hófst í ársbyrjun 2024. Verkefnið stendur til fjögurra ára og er áhersla lögð á heildræna nálgun þar sem rannsóknir, gagnasöfnun, stuðningur við við grasrótarsamtök og valdefling kvenna og stúlkna verður í forgrunni.
Samkvæmt UNFPA hafa 83% kvenna í Síerra Leóne undirgengist kynfæralimlestingar en siðvenjan er greipt djúpt í menningu landsins. Kynfæralimlestingar á kynfærum kvenna ná til allra aðgerða sem fela í sér að ytri kynfæri kvenna eru fjarlægð að hluta eða að öllu leyti, og þeirra áverka sem hljótast sökum slíkra aðgerða. Aðgerðirnar hafa engan heilsufarslegan ábata í för með sér, en fela í sér margvíslega áhættu, meðal annars hættu á alvarlegum blæðingum, sýkingum, vandkvæðum við fæðingar og fjölgun andvana fæðinga. Þar að auki geta sálrænar afleiðingar verið verulegar en sá þáttur hefur ekki mikið verið rannsakaður.
Kynfæralimlestingar á kynfærum kvenna ná til allra aðgerða sem fela í sér að ytri kynfæri kvenna eru fjarlægð að hluta eða að öllu leyti, og þeirra áverka sem hljótast sökum slíkra aðgerða. Aðgerðirnar hafa engan heilsufarslegan ábata í för með sér, en fela í sér margvíslega áhættu, meðal annars hættu á alvarlegum blæðingum, sýkingum, vandkvæðum við fæðingar og fjölgun andvana fæðinga. Þar að auki geta sálrænar afleiðingar verið verulegar en sá þáttur hefur ekki mikið verið rannsakaður.
Málefnið er afar viðkvæmt í Síerra Leóne vegna þess hve viðtekin venjan er, en hún á sér djúpar menningarlegar rætur og er hluti af athöfn fyrir stúlkur til undirbúnings fyrir fullorðinsárin og hjónaband. Því er afar brýnt að unnið sé að afnámi siðvenjunnar í samstarfi við stjórnvöld, samfélagsleiðtoga og ungmenni, þá sérstaklega unglingsstúlkur, ásamt innlendum félaga- og grasrótarsamtökum til að stuðla að viðhorfsbreytingum og að þessum skaðsömu aðgerðum verði hætt með varanlegum hætti.
Ísland hefur um árabil stutt samstarfsverkefni Sameinuðu þjóðanna um upprætingu limlestinga á kynfærum kvenna fyrir árið 2030. Verkefnið sem nær til sautján ríkja er leitt af Mannfjöldasjóði Sameinuðu þjóðanna, UNFPA, og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF.
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme - WFP)
Uppbyggingu á endurnýjanlegum orkugjöfum fyrir heimili í Kambia-héraði
Ísland, Írland, Evrópusambandið og stjórnvöld í Síerra Leóne eiga í samstarfi um verkefni sem ber heitið Lite Salone Renewable Energy Access for Rural Households in Kambia. Verkefnið snýr að uppbyggingu á endurnýjanlegum orkugjöfum fyrir heimili í Kambia héraði. Samstarfsverkefnið fór af stað árið í aprílmánuði 2024. Markmið verkefnisins er er að „lýsa upp“ heimili í Kambia héraði sem hafa ekki aðgang að raforku í gegnum hefðbundin dreifikerfi.
Einungis 26 prósent heimila í Síerra Leóne eru með aðgang að dreifikerfi landssins, en í sveitum er talið að allt að 90 prósent heimila séu ekki tengd við dreifikerfið. Til þess að koma til móts við þennan orkuskort notast íbúar í sveitum landsins við orkugjafa á borð við steinolíu og eldivið sem geta reynst hættulegir, óskilvirkir og skaðlegir bæði náttúrunni og heilsu þeirra sem notast við þá, einkum konum og börnum sem eru útsett fyrir þeim reyk sem myndast við notkun á orkugjöfunum. Skortur á aðgengi að stöðugu rafmagni hefur einnig neikvæð áhrif á námsferil barna þar sem erfitt getur reynst að stunda heimalærdóm að kvöldi til þegar engin ljós eru til staðar, auk þess sem skólar geta ekki boðið upp á viðunandi námsumhverfi fyrir nemendur sína. Rafmagnsskortur hefur einnig mikil áhrif á getu heilbrigðisstofnana til þess að veita íbúum nauðsynlegu þjónustu en skortur á rafmagni dregur einnig úr efnahagslegum tækifærum fyrir íbúa sem leiðir af sér frekari fátækt og hamlar þróun.
Lite Salone verkefnið beitir nýstárlegri nálgun sem gengur undir nafninu energy as a service. Nálgunin felur það í sér að íbúar í Kambia þurfa ekki að leggja út fyrir uppsetningu á sólarsellubúnaði, sem er mjög kostnaðarsamt, heldur greiða þeir mánaðargjald sem veitir aðgang að rafmagnstæknibúnaði, útvarpi og hleðslustöð. Með því að greiða mánaðargjald fá notendur einnig aðgang að reglulegu viðhaldi og viðgerðum frá þjónustuaðila. Þessi nálgun byggir á sjálfbæru rekstrarkerfi sem tryggir viðhald og að verkefnið þjóni íbúum um langa framtíð. Fátækustu heimilin í Kambia, um 10-15 prósent þeirra sem verkefnið nær til, sem ekki hafa ráð á að greiða mánaðarlegt gjald fá afhentan einfaldari sólarsellubúnað sér að kostnaðarlausu.
Framkvæmd verkefnisins er í höndum írsku félagasamtakanna Trócaire, í samstarfi við sólarorkufyrirtækið Easy Solar og innlendu félagasamtakanna Kambia District Development and Rehabilitation Organization (KADDRO). Vonast er til þess að góður árangur af verkefninu muni leiða til þess að það verði stækkað og muni ná til allra héraða Síerra Leóne.
Um Síerra Leóne
Síerra Leóne er á vesturströnd Afríku og á landamæri að Líberíu, Gíneu og Atlantshafinu. Höfuðborg landsins er Freetown og áætlaður íbúafjöldi landsins er 8,1 milljón samkvæmt Alþjóðabankanum (2021). Þjóðin er mjög ung en 75% íbúa eru undir 35 ára aldri. Flatarmál landsins er 72,180 þúsund ferkílómetrar sem þýðir að landið er talsvert minna en Ísland en þess má einnig geta að Síerra Leóne er hringlagasta landið á landakorti heimsins. Síerra Leóne er meðal fátækustu ríkja í heimi en það situr í 185. sæti af 192 ríkjum á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna (2025, Human Development Report).
Landið býr yfir ríkum jarðvegi og náttúruauðlindum í jörðu, þar á meðal demöntum og málmum, státar af fallegum ströndum sem og gróður- og fjalllendi. Síerra Leóne liggur nálægt miðbaug og árstíðir í landinu skiptast í tvennt; rigningatíma og þurrkatíma. Landið er meðal viðkvæmustu landa í Afríku gagnvart loftslagsbreytingum og hafa loftslagstengdar náttúruhamfarir, einkum flóð og aurskriður, verið tíðari á undanförnum árum og valdið miklu tjóni.
Gjöful fiskimið eru úti fyrir ströndum landsins og fiskveiðar eru ein af undirstöðum efnahags Síerra Leóne og leggja til um 10% af vergri landsframleiðslu og áætlað er að 100 þúsund manns hafi beina atvinnu af virðiskeðju fiskafurða og allt að hálf milljón manna reiði sig á einhvern hátt á fiskiauðlindina til lífsviðurværis. Útflutningur á sjávar -og landbúnaðarafurðum er verulega takmarkaður og skortur er á fæðu -og næringaröryggi landsmanna, sér í lagi á landsbyggðinni en landsmenn rækta hrísgrjón, kassavarót og kassavalauf sem hvort tveggja eru mikið notuð í matargerð ásamt sterkum chillipipar og pálmaolíu. Landið reiðir sig að miklu leyti á innflutning og eru hrísgrjón, sem eru uppistaðan í daglegu fæði landsmanna, helsta innflutningsvara landsins.
Ellefu ára borgarastríð, sem lauk árið 2002, ásamt Ebólu faraldrinum, sem lauk árið 2016, hafa haft mikil áhrif á efnahags- og félagslegar horfur í landinu. Covid-19 faraldurinn skall síðan á og hægði aftur á hagvexti og þróun.
Gjöful fiskimið eru úti fyrir ströndum landsins og fiskveiðar eru ein af undirstöðum efnahags landsins en þær leggja til um það bil 10% til vergrar landsframleiðslu auk þess sem áætlað er að 100 þúsund manns hafi beina atvinnu af virðiskeðju fiskafurða og allt að hálf milljón manna reiði sig á einhvern hátt á fiskiauðlindina til lífsviðurværis. Útflutningur á sjávar -og landbúnaðarafurðum er verulega takmarkaður og skortur er á fæðu -og næringaröryggi landsmanna, sér í lagi á landsbyggðinni en landsmenn rækta hrísgrjón, kassavarót og kassavalauf sem hvort tveggja eru mikið notuð í matargerð ásamt sterkum chillipipar og pálmaolíu. Landið reiðir sig að miklu leyti á innflutning og eru hrísgrjón, sem eru uppistaðan í daglegu fæði landsmanna, helsta innflutningsvara landsins en gjaldmiðillinn er veikur og efnahagskerfið almennt viðkvæmt fyrir utanaðkomandi sveiflum sem geta þá haft mikil áhrif á hvort tveggja fæðuöryggi og efnahagshorfur.
Ellefu ára borgarastríð, sem lauk árið 2002, ásamt E-bólu faraldrinum, sem lauk árið 2016, hafa haft mikil áhrif á efnahags- og félagslegaþróun í landinu. Covid-19 faraldurinn skall síðan á með sínum afleiðingum og hægði enn frekar á hagvexti og þróun.
Um Síerra Leóne
Samstarfsverkefni Íslands og UNFPA um forvarnir og lækningu við fæðingarfistli 2023