06 nóvember 2020
Skýrsla um nýtingu úrræða í heimsfaraldri: Hátt í 40 milljarðar í beinan stuðning til heimila og fyrirtækja
Heimili og fyrirtæki hafa til þessa fengið 38,2 ma.kr. í beinan stuðning vegna heimsfaraldurs kórónuveiru að því er fram kemur í skýrslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins um nýtingu efnahagsúrræða vegna faraldursins. Þá hafa 19,5 ma.kr. farið í frestun skattgreiðslna, 20 ma.kr. í frestun aðflutningsgjalda auk þess sem 6,6 ma.kr. hafa verið lánaðir með ríkisábyrgð.…