03 júní 2015
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á ráðstefnu um vöxt í bláa lífhagkerfinu
<p>Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sótti ráðstefnuna <em>Vöxtur í bláa lífhagkerfinu</em>, sem haldin var í Færeyjum 2.-3. júní.  Ráðstefnan var liður í formennskuáætlun Dana, og þar með Færeyinga, í norrænu ráðherranefndinni, árið 2015. Skipulagið var í höndum Nordisk Marin Tænketank, sem er sjálfstæð norræn hugveita um sjávarútvegsmál.</p>