Athugið neysluviðmiðin voru síðast uppfærð í október 2019
Neysluviðmið voru fyrst birt árið 2011 og hafa síðan þá verið uppfærð átta sinnum, síðast árið 2019. Líkt og rakið er í lýsingu á neysluviðmiðum (sjá „uppfærslur og endurskoðun opinberra neysluviðmiða“) er nú unnið að heildarendurskoðun á allri umgjörð neysluviðmiða. Viðmiðin hafa því ekki verið uppfærð.
Í reiknivélinni hér að neðan er hægt að reikna út tvenns konar neysluviðmið fyrir íslensk heimili. Eftir að notandi hefur sett inn upplýsingar um fjölskyldustærð og búsetu reiknar vélin viðmiðunarútgjöld m.v. árið 2019. Einnig geta notendur fært inn raunkostnað fyrir einstaka útgjaldaliði og þannig nýtt reiknivélina til að smíða útgjaldaáætlun fyrir eigið heimili.
Dæmigert viðmið fyrir heimilið – mánaðarleg útgjöld (kr.)
Útgjaldaflokkar
Viðmiðunarútgjöld
Neysluvörur
Matur, drykkjarvörur og aðrar dagvörur til heimilishalds
Matur svo sem: brauð og kornvörur, kjöt, fiskur, mjólk, ostar og egg, olíur og feitmeti, ávextir, grænmeti, sykur og sælgæti, aðrar matvörur.
Drykkjarvörur svo sem: kaffi, te, kakó, gosdrykkir, safar og vatn.
Óvaranlegar heimilisvörur svo sem: hreingerningarvörur og hreingerningaáhöld.
Hreinlætis og snyrtivörur svo sem: sápur, sjampó, húðvörur og snyrtitæki.
34.592
Föt og skór
Föt til að nota við öll tækifæri og fyrir allar árstíðir, fataefni, fatahreinsun og fataviðgerðir.
Skór til nota við öll tækifæri og fyrir allar árstíðir, skóviðgerðir.
15.294
Heimilisbúnaður
Húsgögn og munir
Vefnaðarvörur til heimilis
Borðbúnaður og eldhúsáhöld
Aðrir persónulegir hlutir svo sem: töskur, barnastólar, barnakerrur, pelar og snuð.
4.695
Raftæki og viðhald raftækja
Heimilisraftæki ætluð til sameiginlegra nota svo sem: kæliskápar, þvottavélar, ryksugur og kaffivélar.
Sjónvörp, hljómflutningstæki, tölvur o.þ.h.
Viðgerðir á raftækjum
5.147
Samtals
59.728 (26,8%)
Þjónusta
Lyf, lækningavörur og heilbrigðisþjónusta
Lyf, vítamín, gleraugu, stoðtæki og fylgihlutir.
Heilsugæsla svo sem: þjónusta heimilislækna, sérfræðinga og tannlækna, sjúkrahúsvist, sjúkraþjálfun og endurhæfing.