22 febrúar 2016Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Tollkvóti fyrir kartöflunasl frá Noregi
Með vísan til reglugerðar nr. 110/2016, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda þann 10. febrúar 2016, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir kartöflunasl í tollskrárnúmeri 2005.2003, sem upprunnið er í Noregi og er innflutt þaðan, sbr. bókun 4 við EES-samninginn.