13 maí 2002Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Leiðbeiningar varðandi sölu félagslegra eignaríbúða
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, var samþykkt á Alþingi þann 2. maí sl. Eftir er að birta lögin í A-deild Stjórnartíðinda og taka lögin gildi eftir birtingu þeirra. Með 3. gr. laganna er sveitarfélögum nú heimilað að falla frá kaupskyldu á félagslegum eignaríbúðum.