23 maí 2013Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra í nýrri ríkisstjórn
Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrsti þingmaður í Reykjavíkurkjördæmi suður, tók við embætti innanríkisráðherra á ríkisráðsfundi sem lauk nú fyrir stundu. Hún tekur við af Ögmundi Jónassyni sem gegndi því embætti fyrstur manna en innanríkisráðuneytið var formlega stofnað 1. janúar 2011.