01 mars 2013Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Slökkviliðsmenn í bleiku vegna
Mottumars
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, var í dag viðstödd þegar Mottumars-átakinu var hleypt af stokkunum í húsnæði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) í Skógarhlíð. Fjöldi slökkviliðsmanna íklæddir bleikum stuttermabolum voru einnig á staðnum, en rannsóknir sýna að slökkviliðsmenn eru í meiri áhættu en aðrir á að fá krabbamein.