31 október 2006Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Halldór Ásgrímsson kjörinn framkvæmdastjóri skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar
Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur verið kjörinn framkvæmdastjóri skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar. Jónína Bjartmarz sat í gær fund samstarfsráðherra Norðurlandanna í Kaupmannahöfn þar sem Halldór Ásgrímsson og Finninn Jan-Erik Enestam sátu fyrir svörum, en þeir komu báðir til greina sem næsti framkvæmdastjóri skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar.