22 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðÞið þekkið Ugga Ævarsson minjavörð Suðurlands á Uppsveitabrosinu! Í uppsveitum Árnessýslu og Flóanum er blómleg ferðaþjónusta og þar í sveit leggja menn mikið upp úr jákvæðni og samvinnu allra þeirra sem koma málum.
22 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðFramlag til kynningarmiðstöðva listgreina aukiðMennta- og menningarmálaráðherra hefur undirritað samninga um rekstrarframlag við kynningarmiðstöðvar listgreina og hönnunar.
21 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðHeimboð Íslendinga gera víðreist ... fréttamiðlar í 57 löndum fjölluðu um átakið „Fiskisagan flýgur“ segir orðtakið og það má til sanns vegar heimfæra það upp á heimboð Íslendinga til útlendra ferðamanna í tengslum við markaðsverkefnið „Ísland allt árið“.
21 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðFormleg opnun Verne gagnaversÁvarp iðnaðarráðherra, Oddnýjar G. Harðardóttur, við opnun Verne gagnavers sem fram fór 7. febrúar 2012.
21 febrúar 2012Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðMöguleikar á framleiðslu endurnýjanlegrar orku aukast með hlýnandi loftslagiSvandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra tók í gær á móti fyrsta eintakinu af nýrri skýrslu um loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á endurnýjanlega orkugjafa á 21. öld á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum. Skýrslan er afrakstur viðamikils samvinnuverkefnis 30 stofnana og fyrirtækja í þessum löndum, sem Veðurstofa Íslands stýrði en um 100 vísindamenn komu að gerð hennar.
21 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðEmbætti rektors Hólaskóla - Háskólans á HólumMennta- og menningarmálaráðherra hefur að fenginni tilnefningu háskólaráðs Hólaskóla- Háskólans á Hólum skipað Erlu Björk Örnólfsdóttur í embætti rektors Hólaskóla- Háskólans á Hólum til fimm ára frá 1. apríl nk. að telja.
21 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðDagur menntunar í ferðaþjónustuÁvarp Katrínar Jakobsdóttur um starfsmenntun á degi starfsmenntunar í ferðaþjónustu, 16. febrúar 2012.
21 febrúar 2012UtanríkisráðuneytiðSamráðsfundur stjórnvalda, félagasamtaka og hagsmunasamtaka um ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, Ríó+20Í gær var haldinn í utanríkisráðuneytinu fundur íslenskra stjórnvalda með fulltrúum félagasamtaka og hagsmunasamtaka um undirbúning vegna Ríó + 20, ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin verður í júní nk.
20 febrúar 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðÁvarp ráðherra á opnu húsi hjá Gigtarmiðstöð Gigtarfélags ÍslandsGuðbjartur Hannesson velferðarráðherra flutti ávarp á opnu húsi hjá Gigtarmiðstöð Gigtarfélags Íslands, laugardaginn 18. febrúar.
20 febrúar 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðFélagsvísar kynntir í fyrsta sinn á Íslandi – mikilvægt stjórntækiVelferðarráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn í liðinni viku nýja skýrslu um félagsvísa sem stefnt er að því að safna og birta reglulega. Félagsvísarnir eiga að auðvelda aðgengi stjórnvalda og hagsmunaaðila að skilgreindum upplýsingum sem varpa ljósi á þjóðfélagsástandið og styðja við stefnumótun stjórnvalda.
20 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðKeflavíkurflugvöllur er afbragð annarra evrópskra flugvallaÍ nýrri könnun alþjóðasamtaka flugvalla, Airports Council International, er það staðfest einn ganginn enn að Keflavíkurflugvöllur er á meðal allra bestu flugvalla í Evrópu.
17 febrúar 2012ForsætisráðuneytiðJapönsk sendinefnd ber kveðju forsætisráðherra Japans og kynnir sér jarðhitanýtinguJóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók í morgun á móti sendinefnd frá Japan, sem leidd er af hópi japanskra þingmanna, með þátttöku fulltrúa japanskra fyrirtækja og stofnana.
17 febrúar 2012ForsætisráðuneytiðRéttur lánþega tryggðurGrein eftir Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, sem birtist í Fréttablaðinu 17. febrúar 2012.
17 febrúar 2012InnviðaráðuneytiðAðalfundur ICEPRO verður haldinn 22. febrúar og EDI bikarinn afhentur í sextánda sinnAðalfundur ICEPRO verður haldinn í Snæfelli á Hótel Sögu, miðvikudaginn 22. febrúar 2012. Fundurinn hefst kl. 12:00. Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra ávarpar fundinn og afhendir EDI-bikarinn.
17 febrúar 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðÁvarp ráðherra við opnun atvinnutorgs í ReykjavíkGuðbjartur Hannesson flutti ávarp við opnun atvinnutorgs fyrir ungt fólk í Reykjavík í dag. Verkefnið markar tímamót þar sem boðin verða úrræði fyrir ungt fólk án tillits til réttinda þess innan atvinnuleysistryggingakerfisins.
17 febrúar 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðAtvinnutorg – nýtt úrræði fyrir unga atvinnuleitendurAtvinnutorg fyrir unga atvinnuleitendur á aldrinum 16-25 ára voru opnuð í Reykjavík og Reykjanesbæ í dag. Verkefnið markar tímamót þar sem boðin verða úrræði fyrir ungt fólk án tillits til réttinda þess innan atvinnuleysistryggingakerfisins.
17 febrúar 2012Laun forsætisráðherra skert um 5,2 milljónir króna frá hruniFyrir viku sló Fréttatíminn upp launahækkunum forsætisráðherra og þingmanna. Tilefnið virtist vera ákvörðun kjararáðs snemma vetrar um að fella úr gildi þá launalækkun sem gilt hafði frá því þremur mánuðum eftir bankahrunið haustið 2008.
17 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðÞeim er ætlað stórt hlutverk í umhverfis- og orkurannsóknumÍ vikunni var úthlutað úr Orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar alls 58 milljónum króna í styrki til framhaldsnáms og rannsóknarverkefna á sviði umhverfis- og orkurannsókna.
17 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðRæða ráðherra á aðalfundi SamorkuOddný G Harðardóttir, iðnaðarráðherra flutti ræðu á aðalfundi Samorku í dag. Þar fjallaði hún m.a. um orkustefnu fyrir Ísland og lagði sérstaka áherslu á orkuskipti í samgöngum.
17 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðRæða efnahags- og viðskiptaráðherra á Alþingi um gengislánSteingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, flutti munnlega skýrslu á Alþingi 16. febrúar 2012 um dóm Hæstaréttar um gengislán, sem féll degi áður. Ræðuna má lesa á vef ráðuneytisins.
17 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðÁhrif gengislánadóms Hæstaréttar frá 15. febrúar 2012Í dómi Hæstaréttar nr.600/2011 er fallist á rök lántakenda þess efnis að ekki hafi verið heimilt fyrir lánveitanda að krefja lántaka gengistryggðs láns um vexti samkvæmt viðmiðun Seðlabanka Íslands eftir fyrri úrskurð Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána þar sem lántaki gat sýnt fram á fullnaðarkvittun um greiðslu vaxta af láni sínu.…
17 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðMatsfyrirtækið Fitch hækkar lánshæfismat Íslands upp í fjárfestingarflokkMatsfyrirtækið Fitch Ratings hækkaði í dag lánshæfismat Íslands upp í fjárfestingarflokk með stöðugum horfum. Fitch hækkaði einkunn ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt úr BB+ í BBB-.
17 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðMakrílviðræðum lokið án samkomulags.Lokafundi strandríkjanna fjögurra, Íslands, ESB, Noregs og Færeyja, auk Rússlands um stjórn markrílveiða í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2012 lauk í dag í Reykjavík.
17 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðAðalfundur Samorku 2012Ávarp iðnaðarráðherra, Oddnýjar G. Harðardóttur, á aðalfundi Samorku sem fram fór 17. febrúar á Grand hóteli í Reykjavík.
17 febrúar 2012Fjármála- og efnahagsráðuneytiðLánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands hækkuð – viðurkenning á góðum árangri við stjórn ríkisfjármálaMatsfyrirtækið Fitch hefur hækkað lánshæfiseinkunn Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt í BBB- úr BB+.
17 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytið„Að skrifa konur inn í söguna“Ávarp Katrínar Jakobsdóttur á málþingi um hlutdeild og birtingarmyndir kynjanna í sögubókum, sem haldið var í Háskóla Íslands.
17 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðKatrín Jakobsdóttir afhendir starfsmenntaverðlaun SAFStarfsmenntaverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar voru veitt ferðaskrifstofunni Iceland Travel
17 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðKatrín Sigurðardóttir verður fulltrúi Íslands í Feneyjum 2013Tilkynnt var í dag hver var valinn til að sýna fyrir Íslands á Feneyjatvíæringnum á næsta ári.
17 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðEmbætti skólameistara við Fjölbrautaskóla SuðurnesjaLaust er til umsóknar embætti skólameistara við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Í skólanum eru í boði margar námsleiðir í bóknámi og starfsnámi.
17 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðEmbætti skólameistara við Fjölbrautaskóla SuðurlandsLaust er til umsóknar embætti skólameistara við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Í skólanum eru í boði margar námsleiðir í bóknámi og starfsnámi.
17 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðAuglýsing frá barnamenningarsjóðiMeginhlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á sviði barnamenningar. Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku barna
17 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðTónlistarsjóður - fyrri úthlutun 2012Ráðuneytið hefur að tillögu tónlistarráðs úthlutað styrkjum úr tónlistarsjóði fyrir fyrri helming þessa árs. Að þessu sinni verða veittir styrkir til 53 verkefna og átta samninga að heildarfjárhæð 33.710.000 kr.
17 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðEmbætti skólameistara við Fjölbrautaskólann við ÁrmúlaLaust er til umsóknar embætti skólameistara við Fjölbrautaskólann við Ármúla. Í skólanum eru í boði margar námsleiðir í bóknámi og starfsnámi.
17 febrúar 2012UtanríkisráðuneytiðSamstarf Íslands og Japans um jarðhitanýtinguUtanríkisráðherra undirritaði í dag samstarfsyfirlýsingu milli utanríkisráðuneytisins og þingmannanefndar á japanska þinginu um víðtækt samstarf Íslands og Japan á sviði jarðhitanýtingar. Á fundi utanríkisráðherra með sendinefndinni sagði hann Íslendinga mjög fúsa til samstarfs við Japani um þróun og uppbyggingu jarðvarmavirkjana.
16 febrúar 2012DómsmálaráðuneytiðAthugasemdir á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna teknar alvarlegaUnnið er að því á vegum innanríkisráðuneytisisins að taka afstöðu til þeirra athugasemda sem komu fram á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í reglubundnu eftirliti með mannréttindum á Íslandi sem fram fór í Genf 10. október síðastliðinn. Ráðuneytið fagnar umfjöllun um niðurstöðurnar og hefur nú fjögur ár til að hrinda í framkvæmd þeim umbótum sem ráðist verður í.
16 febrúar 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðTillögur um bætta öflun og miðlun upplýsinga um húsnæðismálVinnuhópur sem fjallað hefur um leiðir til að efla og samræma öflun og miðlun upplýsinga um húsnæðismál skilaði velferðarráðherra tillögum sínum í dag. Tillögur hópsins eru liður í stærra verkefni sem miðar að því að móta heildstæða húsnæðisstefnu á Íslandi í samræmi við tillögur samráðshóps um húsnæðisstefnu sem kynntar voru í apríl 2011.
16 febrúar 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðSkýrsla vinnuhóps til að efla og samræma öflun og miðlun upplýsinga um húsnæðismálSkýrsla þessi er unnin af vinnuhópi sem skipaður var af velferðarráðherra í september 2011 til að efla og samræma öflun og miðlun upplýsinga um húsnæðismál.
16 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðJarðvangur á Reykjanesi mun skapa mikla möguleika í ferðaþjónustu og vísindastarfiBæjarfélögin á Suðurnesjum eru með stórar og metnaðarfullar áætlanir um stofnun jarðvangs á Reykjanesi. Með því móti ætla þau að efla ferðaþjónustu á svæðinu sem og vísindarannsóknir um svæðið.
16 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðRæða Steingríms J. Sigfússonar efnahags- og viðskiptaráðherra flutt á Alþingi þann 16. febrúar 2012 um dóm Hæstaréttar um gjaldeyrislán
16 febrúar 2012Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðUmhverfisráðherra heimsækir ÍSORSvandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra heimsótti Íslenskar orkurannsóknir í gær, ÍSOR, eftir að stofnunin bauð ráðherranum að koma og kynna sér starfsemina sem þar fer fram.
16 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðKönnun á íþróttakennslu í framhaldssskólumLiður í þriggja ára áætlun um ytra mat á framhaldsskólum
16 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðÍþróttasjóður - úthlutun 2012Íþróttanefnd bárust alls 119 umsóknir að upphæð 72.581.257 kr. um styrki úr Íþróttasjóði vegna ársins 2012. Mennta- og menningarmálaráðherra hefur samþykkt tillögur íþróttanefndar, alls að upphæð 15.845 m.kr. til 62 verkefna.
15 febrúar 2012InnviðaráðuneytiðFramtíð innanlandsflugs til umræðu á AlþingiSérstök umræða um framtíð innanlandsflugs á Íslandi fór fram á Alþingi í dag. Einar K. Guðfinnsson var málshefjandi og sagði hann ríkja óvissu um stöðu innanlandsflugs meðal annars vegna umræðna um framtíð Reykjavíkurflugvöll. Einnig taldi hann að hækkanir gjalda á umferð um flugvelli valda mjög auknum byrðum á innanlandsflug og farþega þess.
15 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðAkureyri blífur og sundlaugarnar og jarðböðin eru algert „möst“ Íslendingar eru duglegir að ferðast innanlands og í nýrri könnun Ferðamálastofu um ferðalög Íslendinga kemur í ljós að níu af hverjum tíu Íslendingum ferðuðust innanlands í fyrra og langflestir hafa ferðalög af einhverju tagi á stefnuskránni á þessu ári.
15 febrúar 2012Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðKokteiláhrif efna – raunverulegt áhyggjuefniUmræðan um neikvæð áhrif tilbúinna efna sem finnast í ýmis konar framleiðsluvörum er í algleymingi víðar en hér á Íslandi. Á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar hefur nýlega verið gefið út fræðsluhefti sem ber yfirskriftina: „Kokteiláhrif efna – raunverulegt áhyggjuefni,“ eða „Chemical cocktails – a serious matter of concern.“
14 febrúar 2012DómsmálaráðuneytiðEfling sveitarstjórnarstigsins: Gögn sem kynnt voru á málþingi á Akureyri 10. febrúar 2012
14 febrúar 2012DómsmálaráðuneytiðFrumvarp um breytingu á lögum um skráð trúfélög á dagskrá Alþingis á morgunÖgmundur Jónasson innanríkisráðherra mun á þingfundi á morgun mæla fyrir lagafrumvarpi um breytingu á lögum um skráð trúfélög, nr. 108/1999 með síðari breytingum. Drög að frumvarpinu voru birt á vef ráðuneytisins í nóvember og gefinn tveggja vikna frestur til umsagna. Bárust nokkrar umsagnir á þeim tíma.