07 febrúar 2013Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Ný handbók fyrir kennara um þarfir barna með ofvirkni og athyglisbrest
Að frumkvæði samráðshóps ráðuneyta um aðgerðaáætlun í þágu barna og ungmenna hefur verið gefin út handbókin; ADHD og farsæl skólaganga. Handbókinni er ætlað að dýpka skilning þeirra sem starfa með börnum með ofvirkni og athyglisbrest (ADHD), einkum á grunnskólastigi, á þörfum nemendanna og bent er á leiðir til að mæta þeim.