07 september 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Vegna umræðu um laun forstjóra Landspítala
Laun Björns Zoega, forstjóra Landspítala, eru ákveðin af kjararáði. Annars vegar tekur kjararáð ákvörðun um grunnlaun og hins vegar fjölda þóknunareininga til að mæta yfirvinnu og álagi sem starfinu fylgir. Með nýorðnum breytingum á launum forstjórans er ekki hróflað við úrskurði kjararáðs hvað það varðar.