27 maí 2015Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Lán frá Póllandi greitt upp
Ríkissjóður Íslands endurgreiðir fyrirfram í vikunni lán frá Póllandi sem tekið var árið 2009 í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda eftir fall fjármálakerfisins, sem studd var af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Um er að ræða endurgreiðslu að fjárhæð 204 milljónir slota, jafnvirði um 7,3 milljarða króna. Lánsloforð Pólverja var upp á 630 milljónir slota og þar af nýtti Ísland um þriðjung.…