10 október 2014Mennta- og barnamálaráðuneytið
Styrkir til verkefna á sviði lista og menningar, menningararfs og til uppbyggingar landsmótsstaða
Samkvæmt ákvörðun Alþingis úthluta atvinnuvega og nýsköpunarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti og velferðarráðuneyti styrkjum af safnliðum ráðuneytanna. Styrkir eru veittir til félaga, samtaka, fyrirtækja eða einstaklinga eftir því sem við á hjá hverju ráðuneyti.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 10. nóvember 2014