05 apríl 2004Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Samkomulag ríkissjóðs og Reykjavíkurborgar um lífeyrisskuldbindingar samrekstrarstofnana.
Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, og Þórólfur Árnason, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu í dag samkomulag um uppgjör og ábyrgð á lífeyrisskuldbindingum vegna starfsfólks samrekstrarstofnana ríkis og Reykjavíkurborgar.