08 ágúst 2013Atvinnuvegaráðuneytið
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra skoðaði virkjunarkosti á Þjórsár- og Tungnaársvæði
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ásamt fylgdarliði úr ráðuneytinu heimsótti Landsvirkjun 7. ágúst síðastliðinn þar sem Hörður Arnarson, forstjóri fyrirtækisins, Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri og sérfræðingar kynntu fyrir ráðherra virkjunarkosti og aflstöðvar á Þjórsár- og Tungnaársvæði.